Páskabingó Þróttar

Mánudaginn 18. mars verður hið árlega Páskabingó Þróttar.

Bingóið verður haldið í Tjarnarsal og hefst það fyrir yngri kynslóðina (12 ára og yngri) kl 18:00. Síðan hefst Bingó fyrir eldri kynslóðina (13 ára og eldri) kl 20:00. Bingóspjaldið mun kosta 400kr en þrjú spjöld saman á 1000kr.

Foreldrafélag Þróttar verður með sjoppu á staðnum.

Mætum öll og styrkjum gott málefni.

Sjáumst