Öskudagurinn 2015

Það var mikið um dýrðir þegar öskudagurinn var haldinn hátíðlegur 18. febrúar sl. Kötturinn var sleginn úr tunnunni og skemmtu krakkarnir sér í hoppukastölum og risarólu. Margir mættu í skrautlegum búningum eins og hægt er að sjá í myndasafninu. 10. bekkur var með kaffisölu og bauð uppá andlitsmálningu.
Allir krakkar fengu smá glaðning og héldu svo ánægð heim á leið.

Myndir frá skemmtuninni má sjá hér í myndasafninu.
Myndirnar tók Sveinn Vernharð Steingrímsson.

Takk allir fyrir komuna!
Kær kveðja Félagsmiðstöðin Boran og 10.bekkur Stóru-Vogaskóla