Öskudagsskemmtun verður haldin miðvikudaginn 18.febrúar í íþróttamiðstöðinni og kostar kr. 200 inn.
Gleðin hefst kl. 15:30 þegar kötturinn verður sleginn úr tunnunni. Að því loknu verður slegið upp heljarinnar grímuballi í íþróttasalnum sem stendur til kl. 18:00. Allir mæta í búningum, leiktæki og fjör.
10. bekkur selur veitingar af ýmsu tagi. Allur ágóði rennur óskiptur til útskriftarferðar 10. bekkjar.
Boðið verður uppá andlitsmálningu í félagsmiðstöðinni frá kl 13:30- 15:30.
Öskudagskveðja,
Félagsmiðstöðin Boran og 10. bekkur