Öskudagsfjör í Vogum

Börn í Vogum létu það ekki á sig fá þó svo að kuldaboli væri á ferðinni á Öskudaginn. Þau komu saman við Stóru-Vogaskóla og slógu köttinn úr tunninni undir öruggri handleiðslu starfsfólks Félagsmiðstöðvarinnar Borunnar. Eftir að tunnurnar höfðu verið sigraðar var haldið inn í skólann á öskudagsball. Á meðfylgjandi myndum sem Sverrir Agnarsson tók má sjá að það var líf í tuskunum og margir skemmtilega búnir í tilefni dagsins.