Öskudagsball 2013

Á Öskudaginn, 13.febrúar ætlum við að skemmta okkur saman í íþróttamiðstöðinni. Öskudagsskemmtun verður haldin og kostar kr. 200 inn.

Gleðin hefst kl. 15:30 þegar kötturinn verður sleginn úr tunnunni. Að því loknu verður slegið upp heljarinnar grímuballi í íþróttasalnum  sem stendur til kl. 18:00.

Allir mæta í búningum, leiktæki og fjör.

10. bekkur selur veitingar af ýmsu tagi. Allur ágóði rennur óskiptur til útskriftarferðar 10. bekkjar.

Boðið verður uppá andlitsmálningu í félagsmiðstöðinni frá kl 13:30- 15:30.

Öskudagskveðja, Félagsmiðstöðin Boran og 10. bekkur