Óskað er eftir tillögum að götuheitum

Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga ákvað á fundi sínum
21. febrúar sl. að óska eftir tillögum frá almenningi að götuheitum á nýjar götur á Miðbæjarsvæði. Um er að ræða götuheiti á safngötu í gegnum hverfið ásamt húsagötum sem liggja út frá henni.
Óskað er eftir að skriflegar tillögur berist til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga fyrir 15. mars nk.