Orkusparnaður. Reiknivél á vef Orkuseturs

Á heimasíðu Orkuseturs, www.orkusetur.is má finna reiknivélar þar sem hægt er að bera saman ýmsa þætti, svo sem varðandi akstur og hjólreiðar. Fyrr í þessum mánuði var sett þar upp sérstök reiknivél, þar sem hægt er að skoða með auðveldum hætti áhrif þess að skipta út glóperum fyrir sparperur. Eins og fram kemur á heimasíðunni má ætla „að þessi reiknivél hvetji neytendur mjög til að skipta yfir í orkuminni lýsingu með tilheyrandi rekstrarsparnaði fyrir heimilið“.

Aðrar reiknivélar Orkuseturs má finna undir tenglinum „Reiknivélar“ í vinstri jaðri fyrrnefndrar síðu.

Bæjarbúar eru hvattir til að nýta sér þessi tæki. Þau afnot eru ókeypis – og líkleg til árangurs.