Orðsending vegna framkvæmda við Iðndal

Á næstunni hefjast framkvæmdir við endurgerð Iðndals milli Stapavegar og Vogabrautar.
Óhjákvæmilega hafa framkvæmdirnar í för með sér nokkra röskun og truflun fyrir fyrirtæki, starfsfólk og vegfarendur meðan á þeim stendur. reynt verður eftir föngum að haga framkvæmdum þannig að óþægindi verði sem minnst.
Um leið og beðist er velvirðingar af því ónæði sem af þessu hlýst er óskað eftir því að strafsfólk og vegfarendur sýni biðlund og taki tillit til framkvæmdanna og þeirrar umferðastýringar og lokana sem þeim fylgir.
Verklok eru áætluð eigi síðar en 30. september nk.
Sveitarfélagið Vogar