Opinn íbúafundur í Hljómahöll þann 30. Maí kl. 17,00

Starfsemin á Keflavíkurflugvelli
og áhrif á samfélagið
Á fundinum verður farið yfir þær framkvæmdir
sem eru framundan á Keflavíkurflugvelli. Einnig
verður farið yfir þær umhverfismælingar sem
eru í gangi og kynntir nýir flugferlar. Farið
verður yfir spár um ný bein störf sem skapast
vegna aukinna umsvifa á Keflavíkurflugvelli og
hvaða vaxtaverki það getur haft í för með sér.

Frummælendur á fundinum
• Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia
• Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri
tækni- og eignasviðs Keflavíkurflugvallar
• Haraldur Ólafsson, yfirflugumferðarstjóri
á Keflavíkurflugvelli
• Valur Klemensson, deildarstjóri umhverfisdeildar
á Keflavíkurflugvelli
• Guðný María Jóhannsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri
á Keflavíkurflugvelli
• Dr. Huginn Freyr Þorsteinsson, sérfræðingur
og eigandi Aton