Opið hús hjá félagsmiðstöðinni.

Næstkomandi miðvikudag þann 2. nóvember verður hinn árlegi
Félagsmiðstöðva- og ungmennahúsadagur haldinn hátíðlegur og
bjóðum við því alla, unga sem aldna, velkomna til okkar í
félagsmiðstöðina á opið hús milli klukkan 18:00 til 21:00.
Þetta er frábært tækifæri fyrir alla til að kynna sér starfið, aðstöðuna,
starfsfólkið og krakkana. Léttar veitingar verða í boði fyrir gesti.
Hvetjum við foreldra sérstaklega til að koma til okkar og eiga góða
stund með okkur, skella sér í pool með krökkunum eða fótboltaspilið,
þythokkí, jafnvel sprikla niðri i íþróttasal. Einnig gætu einhverjir haft
áhuga á að reyna á hæfileika sína í PS4. Það er sem sagt margt
skemmtilegt í boði hérna hjá okkur og eitthvað fyrir alla. Að
sjálfsögðu er einnig alltaf gaman að setjast niður í gott spjall.
Vonandi sjáum við sem flesta.
Starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar.