Opið hús fyrir eldri borgara í Vogum

Þorrablót leikskólans Suðurvalla verður miðvikudaginn 18. febrúar.
Í tilefni dagsins er eldri borgurum sérstaklega boðið í heimsókn í leikskólann kl. 9:30–11:00.

Á þorrablótinu gefst gestum tækifæri til að skoða skólann og heilsa upp á börnin. Einnig verður sýning á gömlum munum, það verður sungið og smakkað á hefðbundnum þorramat.

Börn og starfsfólk á Suðurvöllum vonast til að sjá sem flesta.