Nýtt tjaldstæði opnað í Vogum

Sveitarfélagið Vogar hefur tekið í notkun nýtt tjaldstæði í nágrenni íþróttamiðstöðvarinnar við Hafnargötu.

Tjaldstæðið verður á grasflötinni þar sem áður var knattspyrnuvöllur sveitarfélagsins. Búið er að koma upp litlu aðstöðuhúsi með vatnssalerni og uppþvottaaðstöðu, sem verður til afnota fyrir gesti tjaldstæðisins. Utan á aðstöðuhúsinu eru jafnframt rafmagnstenglar til notkunar fyrir gesti tjaldstæðisins, einkum þá sem eru á húsbílum, húsvögnum og fellihýsum. Ekkert gjald verður innheimt fyrir afnot af tjaldstæðinu fyrst um sinn.

Sveitarfélagið Vogar býður ferðamenn velkomna á tjaldstæðið og vonar að þeir njóti dvalarinnar.

Nánari upplýsingar veitir matsölustaðurinn Jón Sterki, sem staðsettur er vinstra megin við tjaldstæðið,
sími: 771-7900.