Nýr starfsmaður á bæjarskrifstofu



Nýr starfsmaður hefur tekið til starfa á bæjarskrifstofum Sveitarfélagsins
Voga. Gunnella Vigfúsdóttir hóf störf í síðustu viku og leysir Rannveigu
Sveinsdóttur af hólmi, en hún hélt til starfa á fasteignasölu á
höfuðborgarsvæðinu.



Gunnella flutti ásamt fjölskyldu sinni í Voga um mitt síðasta ár, en
bæjarbúar þekkja hana kannski af störfum hennar sem bréfberi hér í bæ
síðustu mánuði. Áður starfaði Gunnella hjá Pennanum við almenn
skrifstofustörf og bókhald.



Um leið og við óskum Rannveigu velfarnaðar á nýjum stað, bjóðum við Gunnellu
velkomna til starfa !



Starfsfólk bæjarskrifstofu