Nýr sérkennslustjóri í leikskólann

Kristín Gísladóttir hefur verið ráðin sérkennslustjóri við Heilsuleikskólann Suðurvelli.
Kristín er leikskólakennari að mennt.  Hún útskrifaðist með b-ed gráðu frá Kennaraháskólanum árið 2000.  Hún hefur starfað sem deildarstjóri og aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann Ösp í Reykjavík frá árinu 2002.  Við bjóðum Kristínu velkomna til starfa.