Nýr leikskólastjóri og aðstoðarleikskólastjóri

María Hermannsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri Heilsuleikskólans Suðurvalla og tekur hún við af Salvöru Jóhannesdóttur. María hefur verið aðstoðarleikskólastjóri Suðurvalla undanfarin ár, en hún er leikskólakennari að mennt og er að ljúka námi í stjórnun menntastofnanna við Kennaraháskólann.

Við ráðningu Maríu í starf leikskólastjóra, losnaði staða aðstoðarskólastjóra. Oddný Baldvinsdóttir, leikskólakennari hefur verið ráðin í þá stöðu. Oddný hefur verið deildarstjóri við Suðurvelli undanfarin ár.

Þær eru boðnar velkomnar til starfa í nýjum stöðum og óskað velfarnaðar í starfi.