Nýárskveðja meistaraflokksráðs Umf. Þróttar í knattspyrnu

Dregið var í hinu árlegu happdrætti meistaraflokks Þróttar í knattspyrnu nú fyrir skemmstu.  Fjöldi glæsilegra vinninga voru dregnir út en vinningaskráin innihélt þrjátíu glæsilega vinninga. Vinningaskrána má finna á heimasíðunni okkar throttur.net. Fyrsti vinningur í ár var 50.000 króna gjafabréf með Icelandair. Sú heppna sem vann ferðavinninginn heitir Sylvía en hún býr hér í Vogum. Á myndinni hér til hliðar má sjá Sylvíu taka við vinningnum úr höndum Marteins Ægissonar, formanns meistara-flokksráðs.

Viljum við þakka kærlega fyrir frábærar móttökur og stuðninginn sem fólk sýndi með því að kaupa happdrættismiða af okkur, sem og öllum þeim fyrirtækjum sem styrktu með því að gefa vinninga.

Að lokum viljum við hvetja ykkur til að mæta á völlinn í sumar og styðja við bakið á strákunum en eins og flestir ættu að vita þá mun Þróttur taka í notkun nýja og glæsilega keppnis og æfingaaðstöðu í tilefni þess að félagið verður 80 ára á árinu.

Kæru stuðningsmenn nær og fjær gleðilegt nýtt ár og megi árið 2012 verða ykkur gjöfult.