Ný ferð hjá Vogastrætó

Frá og með 8. júlí bætist ein ferð á dag við hjá Vogastrætó. Ferðin miðast við að tengjast brottför Reykjanes Express frá BSÍ kl. 17:00. Brottför frá Gamla Pósthúsinu er kl. 17:33. Eins og aðrar ferðir Vogastrætó er þessi ferð einungis ekin á virkum dögum. Eftir þessar breytingu eru því samtals eknar sex ferðir á dag virka daga, milli Gamla Pósthússins og mislægu gatnamótanna við Reykjanesbraut. Sjá áætlun Vogastrætó hér.

 

Ath. Í bækling frá SBK sem sendur var í öll hús um daginn eru rangar upplýsingar í tímatöflu S500 (Vogastrætó), hann gengur alla virka daga en ekki alla daga vikunnar eins og stendur þar.