Norræna félagið í Vogum býður til móttöku

Í tilefni þess að miðvikudaginn 28. ágúst nk. mun formleg undirritun um vinabæjarsamstarf sveitarfélaganna Fjaler í Noregi og Voga fara fram býður deild Norræna félagsins í Vogum íbúum sveitarfélagsins til móttöku í Álfagerði við Suðurgötu.

Móttakan hefst kl. 19:00 og lýkur kl. 21:00.

Boðið verður upp á léttar veitingar.


Með vinakveðju

Norræna félagið í Vogum og sveitarfélagið Vogar