NORRÆN LJÓSAHÁTÍÐ Í VOGUM

Laugardaginn 13. desember standa deildir Norræna félagsins í Garði, Reykjanesbæ og Vogum fyrir ljósahátíð á degi heilagrar Lúsíu.
Boðið verður upp á sólberjasaft og jólaglögg en tíundi bekkur Stóru-Vogaskóla mun selja aðrar veitingar á sanngjörnu verði.
Deildirnar munu sjá um dagskrá; söng og sögustund.

Hátíðin hefst kl. 15:00 og stendur til kl. 17:00 en hún fer fram í Álfagerði við Suðurgötu í Vogum.
Allir hjartanlega velkomnir!

Stjórn Norræna félagsins í Garði, Reykjanesbæ og Vogum