Niðurgreiðslur leikskólagjalda

Umsóknum um niðurgreiðslur leikskólagjalda fyrir tímabilið september 2013 - ágúst 2014 þarf að skila inn fyrir 20. ágúst 2013.

Allir foreldrar geta sótt um niðurgreidd leikskólagjöld í samræmi við þau tekjuviðmið sem Sveitarfélagið Vogar setur.

Gjaldskrá leikskóla 2013 (pdf)

Umsókn um niðurgreiðslur leikskólagjalda (pdf)


Fylgigögn sem þurfa að fylgja með umsókn eru eftirfarandi:
Staðfest afrit af skattframtali 2013 (Reitir 2.7 og 3.10 á skattframtali eru teknir til tekna)
ATH! Afrit af skattframtali er aðgengileg á heimasvæði hvers og eins á http://skattur.is.

Ef tekjur umsækjanda eru lægri en þær sem koma fram á skattframtali þurfa eftirfarandi gögn einnig að fylgja:
Launaseðlar síðastliðna 3 mánuði
Greiðsluseðlar vegna atvinnuleysisbóta (ef við á)
Yfirlit yfir bætur frá Tryggingastofnun Ríkisins (ef við á)
Yfirlit yfir lífeyrissjóðsgreiðslur (ef við á)


Hægt er að senda umsókn rafrænt á netfangið skrifstofa@vogar.is, þá þurfa að koma þær upplýsingar fram sem beðið er um á umsóknareyðublaðinu ásamt fylgigögnum í viðhengi, einnig er hægt að skila umsókn og fylgigögnum á bæjarskrifstofu frá kl. 8:30-15:30 alla virka daga.