Nautilus heilsurækt opnar um helgina

Um helgina verður opið hús hjá Nautilus heilsuræktinni í íþróttamiðstöðinni í Vogum. Heilsuræktin er öll hin glæsilegasta að aðstaðan eins og best verður á kosið. Nautilus heilsuræktin í Vogum er sú sjötta á Íslandi, en Nautilus rekur stöðvar í Kópavogi, Hafnarfirði, Álftanesi og Vestmannaeyjum.

Starfsfólk Nautilus hefur mikla reynslu af rekstri líkamsræktarstöðva sem mun vafalaust skila sér í bættri þjónustu fyrir íbúa sveitarfélagsins. Aðstaða til íþróttaiðkunar í Vogum fer þannig enn batnandi, en nýlega var opnuð viðbygging við íþróttahúsið með nýjum fjölnotasal.

Nánari upplýsingar um Nautilus www.nautilus.is

Á myndinni eru Róbert, Ragnar, Steen og Kjartan.