Nautilus heilsurækt opnar í Vogum

Um miðjan október opnar Nautilus heilsuræktin á Íslandi sjöttu stöð sína, en Nautilus rekur stöðvar í Kópavogi, Hafnarfirði, Álftanesi og Vestmannaeyjum. Nýjasta stöðin verður staðsett í íþróttamiðstöðinni í Vogum.

Starfsfólk Nautilus hefur mikla reynslu af rekstri líkamsræktarstöðva sem mun vafalaust skila sér í bættri þjónustu fyrir íbúa sveitarfélagsins. Nautilus mun endurnýja tæki í salnum og bjóða upp á glæsilega aðstöðu til líkamsræktar, ásamt þjálfun og kennslu á tækin.

Aðstaða til íþróttaiðkunar í Vogum fer þannig enn batnandi, en nýlega var opnuð viðbygging við íþróttahúsið með nýjum fjölnotasal.

Nánari upplýsingar um Nautilus www.nautilus.is

Myndin er frá heilsurækt Nautilus í Hafnarfirði.