Nafnasamkeppni Hrafnistu Reykjanesi

Hrafnista á Reykjanesi mun standa fyrir nafnasamkeppni á sex nýjar hjúkrunardeildir á nýju og glæsilum hjúkrunarheimili sem opnar á Nesvöllum nú í mars.
 
Öllum er heimil þátttaka.
 
Æskilegt er að nöfnin hafi samfellu og að þau vísuðu í t.d. staði eða kennileiti á Reykjanesi.
 
Tillögum er hægt að skila á netfangið hronn@hrafnista.is eða á þjónustuborð þjónustumiðstöðvarinnar á Nesvöllum fyrir 10. mars næstkomandi.
 
Í dómnefnd verða; fyrir hönd Félag eldri borgara, Jórunn Guðmundsdóttir, fyrir hönd Reykjanesbæjar, Guðlaug María Lewis , fyrir hönd Hrafnistu, Hrönn Ljótsdóttir og fyrir hönd Sjómannadagsráðs, Guðmundur Hallvarðsson.
 
Nöfnin verða tilkynnt við vígslu Hrafnistu Nesvöllum þann 14. mars næstkomandi.
 
 
Bestu kveðjur
 
Hrönn Ljótsdóttir
Forstöðumaður Hrafnistu Reykjanesi