Myndmenntakennsla vegna fæðingarorlofs

Við Stóru-Vogaskóla vantar myndmenntakennara til afleysinga frá 1.mars-31.október 2010. Um 85% stöðugildi er að ræða og kennslu nemenda í 1.-10.bekk.
Skilyrði eru að viðkomandi hafi réttindi til kennslu í grunnskóla.
Laun samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands Íslands og Launanefndar Sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 19.febrúar.
Áhugasamir hafi samband við Svövu Bogadóttur skólastjóra í síma 440-6250 eða sendi inn umsókn á netfangið skoli@vogar.is.