Mótvægisaðgerðir í ferðaþjónustu

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 160 milljónum króna til eflingar ferðaþjónustu á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar á veiðiheimildum.

Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni til atvinnusköpunar í ferðaþjónustu á ofangreindum svæðum. Umsækjendur geta verið sveitarfélög, einstaklingar og fyrirtæki og er hámarksstyrkur til hvers verkefnis 8 milljónir kr.

Verkefnin verði unnin á árunum 2008-2009 og verður styrkurinn greiddur í tvennu lagi, helmingur hvort ár. Seinni greiðslan er háð árangursmælingu í samræmi við ákvæði í umsókn, en hver umsækjandi gerir tillögu að árangursmælikvarða fyrir viðkomandi verkefni. Við afgreiðslu umsókna verður sérstaklega litið til langtímaáhrifa verkefna á sköpun nýrra starfa á svæðunum og hversu hratt störfin geta orðið til. Ekki er um að ræða styrki til menntunar eða rannsókna.

Umsóknum skal skila á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt er að nálgast á vefsíðum Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is) og Ferðamálastofu (www.ferdamalastofa.is)
Umsóknum skal skila til Byggðastofnunar, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki eða Ferðamálastofu, Lækjargötu 3, 101 Reykjavík fyrir 5. febrúar 2008.

Sjá auglýsingu frá Byggðastofnun og Ferðamálastofu.