Mótorsmiðja í Vogum – fundur í félagsmiðstöð 5. maí kl. 19:30

Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga boðar til fundar í félagsmiðstöðinni kl. 19:30 fimmtudagskvöldið 5. maí nk. Tilgangur fundarins er að kanna áhuga og hugmyndir íbúa sveitarfélagsins um mótorsmiðju. Allir áhugasamir um tilurð og eðli mótorsmiðju eru hvattir til að mæta. Á fundinum verður nefndarfólk í Frístunda- og menningarnefnd sveitarfélagsins ásamt Frístunda- og menningarfulltrúa Voga.


Nánari upplýsingar veitir Frístunda- og menningarfulltrúi í síma 440-6225