Mislæg gatnamót

Eins og flestir hafa tekið eftir er verið að vinna við tvöföldun Reykjanesbrautar. Við gatnamót Vogabrautar og Reykjanesbrautar er

verið að vinna við mislæg gatnamót. Af þeim sökum raskast aðkoma umferðar niður í Voga. Í lok janúar 2007 verða gatnamótin með

svipuðu sniði og nú er við gatnamót Grindavíkur og Reykjanesbrautar eða allt til loka framkvæmda.  Vegfarendur eru minntir á að fara varlega meðan á framkvæmdum stendur, virða allar hraðatakmarkanir og gæta sín vel  á þessum kafla þar sem lýsing getur verið af skornum skammti. 

Á meðfylgjandi skjali er hægt að sjá hvernig skipulagið verður í lok janúar.