Miðbæjarkjarni og íbúðabyggð

 

-Rammaskipulagstillaga-

Sveitarfélagið Vogar hefur ákveðið að byggja upp miðbæjarkjarna í sveitarfélaginu. Um er að ræða svæði sem afmarkast af Stapavegi, Vogabraut og Iðndal, við innkeysluna í bæinn. Sú staðsetning er miðsvæðis í bænum, ekki síst með tilliti til fyrirhugaðs hverfis norðan við bæinn. Auk þess er gott aðgengi að svæðinu frá Reykjanesbraut. Því ættu að vera miklir möguleikar fólgnir í því að reka verslun og aðra þjónustu í miðbæ Voga. Aukin verslun og þjónustu ætti líka að skapa fleiri atvinnutækifæri í sveitarfélaginu.

Meginmarkmið verkefnisins er að móta heilsteypt svæði fyrir verslun, þjónustu og íbúðabyggð sem verði vettvangur fjölbreytts mannlífs í sveitarfélaginu og móti fallega umgjörð við innkomu í bæinn. Bærinn fer ört vaxandi og er gert ráð fyrir að undir lok ársins verði íbúar orðnir um 1.200.

Á meðfylgjandi myndum má sjá rammaskipulagstillögu af svæðinu sem bæjarstjórn fékk arkitektastofuna Landslag til að vinna. Tillagan tekur töluvert mið af hryggnum Skyggni sem er á miðju svæðinu, en gert er ráð fyrir góðu aðgengi að honum og gönguleiðum í kring.

Gert er ráð fyrir að á svæðinu verði allt að 130 íbúðir í eins til tveggja hæða rað- og parhúsum og allt að sex hæða fjölbýlishúsum. Mikil áhersla var lögð á að þau hús sem standa efst í byggingareitnum, þ.e. fyrstu húsin sem fólk sér á leið inn í bæinn myndi ákveðið kennileiti. Þau mega vera hærri en önnur hús í hverfinu og er gert ráð fyrir að þau verði allt að sex hæðir og með bílakjallara. Slíkar eignir hafa notið mikilla vinsælda hjá fólki sem hefur komið börnum sínum á legg og vill búa í húsnæði með gott útsýni. Útsýni gerist varla glæsilegra en frá Vogum. Íbúar húsanna munu hafa frábært útsýni yfir Suðurnesin, Snæfellsnes og að sjálfsögðu Keili.

Við horn Stapavegar og Vogabrautar verður hinn eiginlegi miðbæjarkjarni með verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir því að í fyrsta áfanga verði reist 1.500 til 2.000 m2 hús á tveimur til þremur hæðum. Þar fyrir framan verði torg og reiturinn hannaður þannig að við torgið njóti sólar sem mest.

Rammaskipulagstillagan er sett fram til að gefa íbúum kost á að kynna sér málið og gera sér grein fyrir legu og stærð húsanna. Ekki er komin endaleg mynd á hönnun húsa, en tillagan ætti að gefa nokkuð góða mynd af skipulagi svæðisins.

Þess ber að geta að á grundvelli rammaskipulagsins verður unnið deiliskipulag sem fer sinn lögboðna feril þar sem íbúum gefst tækifæri til að gera athugasemdir.

Tillögur og ábendingar eru vel þegnar og óskast sendar á robert@vogar.is