Menntasjóður

Menntasjóður Sveitarfélagsins Voga auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Nemendur sem luku öðru ári í framhaldsskóla á skólaárinu sem nú er að ljúka geta sótt um styrki þessa, en auk þess eru þeim þremur nemendum sem sýndu bestan námsárangur á lokaprófum í 10. bekk Stóru-Vogaskóla veittur styrkur.

Umsóknarfrestur er til 10. júní, og skal umsóknum skilað til bæjarskrifstofunnar í Iðndal 2.

Með umsókninni skal fylgja staðfest útskrift af námsárangri fyrstu tveggja ára framhaldsskólanáms. Styrkirnir verða afhentir á fundi bæjarstjórnar í lok júní n.k.

 

Umsóknareyðublað (pdf)