Mennta, menningar- og afrekssjóður Sveitarfélagsins Voga

Mennta, menningar- og afrekssjóður Sveitarfélagsins Voga auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Nemendur sem hafa lokið fjórum önnum í framhaldsskóla, á tilsettum tíma, auk þeirra sem útskrifuðust úr framhaldsskóla á haustönn 2015 og vorönn 2016, geta sótt um styrk.

Umsóknareyðublað (pdf)

Umsóknarfrestur er til 20. júní  nk. og skal umsóknum skilað á bæjarskrifstofu að Iðndal 2.

Einnig er hægt að sækja um rafrænt með fylgigögnum í viðhengi á Íbúagátt Sveitarfélagsins Voga.

Með umsókninni skal fylgja staðfest útskrift af námsárangri fyrstu anna framhaldsskólanáms eða prófskírteini. Styrkirnir verða afhentir á fundi bæjarstjórnar 29. júní næstkomandi.

Auk þess verður þremur nemendum sem sýndu bestan námsárangur á lokaprófum í 10. bekk Stóru-Vogaskóla veittur styrkur.