Menningarverðlaun 2018 – Tilnefningar óskast

Frístunda- og menningarnefnd óskar eftir tilnefningum félags eða einstaklings í Vogum til menningarverðlauna sem veitt verða við hátíðlega athöfn á sumardaginn fyrsta, þann 19. apríl.
Tilnefningu skal fylgja stutt greinargerð um viðkomandi einstakling eða félag, um starf og viðburði undanfarin ár og þátt í að auðga menningar- og félagslíf í sveitarfélaginu. Frístunda- og menningarnefnd styðst við þá greinargerð við val og kynningu. Tilnefningum skal skila til frístunda- og menningarfulltrúa á netfangið stefan@vogar.is í síðasta lagi miðvikudaginn 14. mars.