Menningarhátíð verður þann 19. Apríl

Maður er manns gaman !
Menningarhátíð í Tjarnarsal í Vogum
sumardaginn fyrsta, 19. apríl 2018, kl. 15 – 18.

Kvennakór Suðurnesja flytur hluta af frábærri afmælissöngskrá.
Fjöldi listafólks úr Sveitarfélaginu Vogum lætur rödd sína hljóma og  ljós sitt skína.
Ljósmyndir, málverk og hannyrðir til sýnis.
Menningarviðurkenningar afhentar í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn.
Kaffi, djús og vöfflur til sölu.
Enginn aðgangseyrir, allir velkomnir.

Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga.