Menningar- og minningarsjóður kvenna auglýsir eftir styrkumsóknum vegna ársins 2011

Auglýst er eftir umsóknum vegna ársins 2011. Að þessu sinni er sjóðurinn opinn fyrir umsóknum frá einstæðum mæðrum sem eru í eða hyggja á nám á framhaldsskólastigi sem ekki veitir aðgang að láni frá LÍN.

Styrkupphæð árið 2011 eru 500 þúsund og áskilur stjórn sjóðsins sér rétt til að ákveða fjölda styrkþega. Styrkur verður greiddur út þegar staðfesting á skólavist liggur fyrir.

Með umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:

*Staðfesting um skólavist og námsframvindu ef nám er hafið.
*Skattaskýrsla vegna tekna árið 2010
*Upplýsingar um aðra styrki vegna námsins ef um þá er að ræða *Tekjuáætlun ársins 2011

Í umsókn skulu koma fram helstu upplýsingar um umsækjanda og aðstæður hans og fjölskylduhagi, hvaða skóla sótt er um og hvaða nám umsækjandi stundar eða hyggst stunda.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu KRFÍ: http://www.krfi.is/

Umsóknarfrestur er til 25. maí nk. Umsóknum skal skilað til Menningar- og minningarsjóðs kvenna, Hallveigarstöðum við Túngötu 14, 101 Reykjavík. Tilkynnt verður um styrkþega á kvenréttindadaginn 19. júní.
Allar nánari  upplýsingar á skrifstofu KRFÍ og á netfanginu krfi@krfi.is