Melkorka Rós heiðruð

 Á árshátíð Stóru Vogaskóla var Melkorka Rós Hjartardóttir, söngkona, heiðruð. Viðurkenninguna hlaut hún fyrir að fara með sigur af hólmi í söngkeppni Samfés sem haldin var 3. mars s.l.

Það var Björn Sæbjörnsson, formaður frístunda- og menningarnefndar, sem afhenti viðurkenninguna fyrir hönd nefndarinnar.

Melkorka er afar hæfileikarík og efnileg söngkona sem Vogabúar eru stoltir af.