Eins og undanfarin ár verða matjurtagarðarnir á sínum stað. Fátt er betra að hausti en nýsprottnar kartöflur og grænmeti.
Matjurtagarðarnir eru staðsettir við gatnamótin inn í Voga.
Beðin eru 12 fermetrar hvert og kostar beðið 1.500 kr.
Skráning og greiðsla fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins að Iðndal 2.
Sími: 440-6200 Netfang: skrifstofa@vogar.is
Ennþá eru nokkur beð laus, um að gera að panta sér fyrir sumarið!