Matarsóun og leiðir til að draga úr henni


Langar þig að eyða minni peningum í
matarinnkaup og á sama tíma stuðla að
umhverfisvernd?
Þekkingarsetur Suðurnesja stendur fyrir spennandi fræðsluerindi, í boði
Samkaupa, þar sem Rannveig Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá
Landvernd, mun fjalla um matarsóun. Matarsóun er stórt alþjóðlegt
vandamál og fjallað verður um orsakir og afleiðingar hennar en líka
hvað við sjálf getum gert til að draga úr matarsóun.
Hvenær: Fimmtudaginn 15. mars frá kl. 20:00 – 21:00
Hvar: Þekkingarsetri Suðurnesja, Garðvegi 1, Sandgerði
Þátttaka er ókeypis en áhugasamir eru beðnir um að skrá þátttöku á
heimasíðu Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum – www.mss.is
Nánari upplýsingar í síma 423-7555 eða tölvupósti
thekkingarsetur@thekkingarsetur.is