Lýðheilsugöngur í Vogum í september 2017

Lýðheilsugöngur í Vogum í september 2017
á miðvikudögum kl. 18:00, í tilefni af 90 ára afmæli Ferðafélags Íslands

Gönguferðir í Sveitarfélaginu Vogum:
6. sept.   Hrafnagjá og Vogaafleggjari. (Göngum í suður)
13. sept. Vogavík og Hólmabúð.  (Göngum í vestur)
20. sept. Djúpivogur, Bieringstangi, eyðibýli milli Voga og Brunnastaðahverfis. (Norður)
27. sept. Almeningsvegur, Brunnastaðalangholt, Hringurinn og Gíslaborg. (Austur).

Allar gönguferðirnar hefjast og enda við íþróttamiðstöðina í Vogum.

Umsjón: Þorvaldur Örn Árnason og Viktor Guðmundsson. Fleiri taka þátt í leiðsögn.

  ----------------------------------------------------

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands verða á öllu landinu nú í september og eru einn af hápunktunum í 90 ára afmælisdagskrá félagsins. Göngurnar munu fara fram í flestum sveitarfélögum landsins alla miðvikudaga í september kl. 18:00. Þetta eru fjölskylduvænar göngur sem taka  u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

Þeir sem vilja geta skráð sig í göngurnar og fara þá í lukkupott sem dregið verður úr að göngum loknum. Fleiri göngur þýða meiri vinningslíkur. Skráning og upplýsingar um göngur má finna á heimasíðu okkar www.fi.is/lydheilsa. Allir eru hjartanlega velkomnir í Lýðheilsugöngurnar og þátttaka er ókeypis.