Lokaball félagsmiðstöðva

Föstudaginn 18. maí var haldið sameiginlegt lokaball á vegum félagsmiðstöðvanna í Vogum, Sandgerði og Garði. Um 80 unglingar mættu á ballið þar sem dj Óli Geir þeytti skífum og gerði það frábærlega vel. Á ballinu var gríðarlega góð stemning og voru starfsmenn á fullu á dansgólfinu með unglingunum. Unglingarnir fóru mjög sáttir heim, en nú er félagsmiðstöðin Boran komin í sumarfrí. Næsta haust opnar félagsmiðstöðin í nýju húsnæði við íþróttamiðstöðina.

Gleðilegt sumar !