Ljósleiðari lagður í Vogum

 

Í síðustu viku hóf Míla framkvæmdir við lagningu ljósnetsins í Vogum. Framkvæmdunum fylgir nokkuð jarðrask því víða þarf að grafa ljósleiðara í jörð og jafnframt verða settir upp þrír götuskápar víðs vegar um bæinn. Framkvæmdir hófust við Egilsgötu, Hafnargötu og Stapaveg. Í þessari viku og næstu verða jarðvegsframkvæmdir við Stapaveg,Vogagerði, Ægisgötu, Brekkugötu og Leirdal.


Með tilkomu ljósnetsins fá heimili í Vogum aðgang að háhraðanettengingu og gagnaflutningshraða sem leyfir m.a. flutning á mörgum háskerpusjónvarpsrásum samtímis, frábæra internettengingu og bestu aðstæður s.s. til fjarvinnu.