Lionsklúbburinn Keilir býður upp á fría blóðsykursmælingu laugardaginn 18. nóvember 2017 frá kl. 15:00-17:00

Lionsklúbburinn Keilir býður upp á fría blóðsykursmælingu laugardaginn 18. nóvember 2017 frá kl. 15:00-17:00 í húsnæði verslunar og bæjarskrifstofu að Iðndal 2.


Nóvember ár hvert er mánuður sykursýkisvarna hjá Lions. Þá bjóða Lionsklúbbar víðs vegar um land upp á fría blóðsykurmælingu. Markmiðið er að vekja almenning til umhugsunar um hættuna sem getur stafað af því að ganga með dulda sykursýki.


Hlökkum til að sjá þig.
Lionsklúbburinn Keilir