Linda Sjöfn Sigurðardóttir ráðin aðstoðarskólastjóri

Linda Sjöfn Sigurðardóttir hefur verið ráðin aðstoðarskólastjóri Stóru- Vogaskóla næsta skólaár, en hún leysir af Jón Inga Baldvinsson sem fer í námsleyfi.

Linda Sjöfn er grunnskólakennari að mennt og stundar meistaranám í Kennaraháskóla Íslands. Undanfarin ár hefur hún gegnt starfi deildarsjóra miðstigs við Stóru- Vogaskóla, ásamt kennslu. Óskum við henni velfarnaðar í nýju starfi.

Tveir umsækjendur voru um stöðu aðstorskólastjóra Stóru-Vogaskóla Linda Sjöfn Sigurðardóttir, deildarstjóri í Stóru- Vogaskóla og Ólafur Als, kennari Odense í Danmörku.