Liðveisla

 

Við þurfum á þínum þrótti og skilningi að halda !

 

Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, SV. Garðs og Sv. Voga óskar eftir fólki

með hjartað á réttum stað !

 

Óskað er eftir fólki til að starfa sem liðveitandi, persónulegur ráðgjafi og fólki með reynslu af börnum til að sinna hlutverki Stuðningsfjölskyldu.  Allt eru þetta áhugaverð og gefandi störf sem eiga það sameiginlegt að veita einstaklingum og fjölskyldum persónulegan stuðning hvert á sinn hátt.

 

  • Liðveisla er starf sem felst í því að vinna með einstaklingum með fötlun og rjúfa félagslega einangrun þeirra.

 

  • Persónulegur ráðgjafi veitir barni ráðgjöf og leiðbeiningar í þeim tilgangi að styrkja barnið félagslega og tilfinningalega s.s. í tengslum við tómstundir, menntun og vinnu.            

 

  • Hlutverk stuðningsfjölskyldu felst fyrst og fremst í því að taka á móti barni á einkaheimili m.a. í því skyni að tryggja öryggi barnsins, létta álagi af því og fjölskyldu þess og leiðbeina foreldrum og styðja þá í uppeldishlutverkinu. Um er að ræða krefjandi en gefandi starf fyrir þá sem hafa áhuga.  Umsóknum þarf að fylgja heilbrigðisvottorð, sakarvottorð og yfirlit yfir starfsferil, menntun og reynslu af starfi með börnum.

 

Nánari upplýsingar veitir Gyða Hjartardóttir félagsmálastjóri eða Ásthildur Guðmundsdóttir félagsráðgjafi hjá Félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Sv. Voga í síma 420-7555.