Leikskólinn Suðurvellir er orðinn heilsuleikskóli

Þann 20. október sl. var haldin býsna fjölmenn hátíð í fjörunni í Vogum.

Tilefnið var að leikskólinn okkar er nú orðinn heilsuleikskóli.  Námskrá leikskólans hefur verið uppfærð samkvæmt viðmiðum heilsustefnunnar og er nú hægt að nálgast hana hér á heimasíðunni. 

Það var kveiktur varðeldur og sungið.  Öllum Vogabúum var boðið að samgleðjast á þessum tímamótum og þiggja kakó, kleinur og flatkökur.

Unnur Stefánsdóttir, einn frumkvöðla stefnunnar heiðraði samkomuna með nærveru sinni og færði leikskólanum fána heilsustefnunnar að gjöf. Jóhanna Reynisdóttir sveitarstjóri og Salvör Jóhannesdóttir skólastjóri leikskólans drógu síðan fánan að húni.

 

Nú eru heilsuleikskólarnir á Suðurnesjum orðnir þrír talsins, en eru sjö á landsvísu.  Mótun leikskólastarfsins að heilsustefnunni hófst í leikskólanum Suðurvöllum vorið 2004.  Þá um haustið var síðan dagskipulagið sniðið að viðmiðum stefnunnar. 

Markmið heilsustefnunnar er að venja börn strax í barnæsku við heilbrigða lífshætti með það í huga að þeir verði hluti af lífsstíl þeirra til framtíðar.  Áhersluþættirnir geta verið mismunandi eftir leikskólum, en góð næring, mikil hreyfing og listsköpun er aðalsmerki þeirra.

Í næringu er boðið upp á hollan og næringarríkan mat, þar sem sykur, salt og fita er notuð í lágmarki og lögð áhersla á að auka ávaxta- og grænmetisneyslu.  Í hreyfingu er lögð áhersla á að auka hreyfifærni, líkamsvitund, vellíðan, gleði, snerpu og þol.  Þannig er síðan stuðlað að aukinni félagsfærni og eflingu vináttubanda.

Í listsköpun er lögð áhersla á að börnin tjái sig frjálst og að sköpunargleðin fái að njóta sín. 

„Náttúra, umhverfi og samfélag“ er ný námsleið innan heilsustefnunnar sem þróuð var hér á Suðurvöllum.  Eins og nafnið gefur til kynna, er um að ræða skipulagðar vettvangsferðir með börnunum um Voga og nánasta umhverfi. Þessi námsþáttur á rætur að rekja til þróunarverkefnis leikskólans Tjarnarsels í Reykjanesbæ: „Vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans“ .  Markmiðið er að börnin efli enn frekar hreyfiþroska sinn og þrek, um leið og þau öðlast betri þekkingu og skilning á umhverfi sínu og samfélagi.  Þannig læra þau að meta það og sýna því virðingu.