Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara/leiðbeinanda til starfa sem fyrst í 80 % starfshlutfall.

Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir viðmiðum heilsustefnunnar.
Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum, einnig er hægt að sækja um með rafrænum hætti á  http://www.leikskolinn.is/sudurvellir  

Umsóknarfrestur er til 1. september n.k. 

Nánari upplýsingar veita María Hermannsdóttir, skólastjóri og Oddný Baldvinsdóttir, aðstoðarskólastjóri
í síma 440-6240.