Leikskólakennari óskast til starfa

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara í 75% starf sem fyrst. Ef leikskólakennari fæst ekki til starfa þá koma aðrir umsækjendur til greina.

Umsóknum skal skila á netfangið leikskoli@vogar.is  eða sækja um á heimasíðu leikskólans  http://sudurvellir.leikskolinn.is  fyrir 10. september n.k.

Nánari upplýsingar um starfið veita: María Hermannsdóttir leikskólastjóri
eða Ragnhildur Hanna Finnbogadóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 440-6240.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á leikskoli@vogar.is

Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið.