Leikskólakennari óskast til starfa

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara í 100% starf frá 1. febrúar 2014.

 

Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir Viðmiðum heilsustefnunnar. Virðing og umhyggja eru leiðandi hugtök í leikskólanum og áhersla er lögð á jákvæðan starfsanda. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

 

Umsóknum skal skila á netfangið leikskoli@vogar.is  eða sækja um á heimasíðu leikskólans  http://www.leikskolinn.is/sudurvellir

fyrir 20. Janúar n.k.

 

Ef leikskólakennarar fást ekki til starfa koma aðrir umsækjendur til greina.

 

Nánari upplýsingar um starfið veita: María Hermannsdóttir leikskólastjóri

og Oddný Baldvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 440-6240.

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á leikskoli@vogar.is