Leikskólakennari óskast til starfa

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara í 100% starf frá 1. febrúar 2013.

Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir Viðmiðum Heilsustefnunnar. Virðing og umhyggja eru leiðandi hugtök í leikskólanum og áhersla er lögð á jákvæðan starfsanda. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum, einnig er hægt að sækja um með rafrænum hætti á  http://www.leikskolinn.is/sudurvellir 

Umsóknarfrestur er til 15. desember n.k.

Ef leikskólakennari fæst ekki til starfa koma aðrir umsækjendur til greina.
 
Nánari upplýsingar veita: María Hermannsdóttir leikskólastjóri
og Oddný Baldvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 440-6240.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á leikskoli@vogar.is