Leikskólakennarar/leiðbeinendur óskast til starfa

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara/leiðbeinendur til starfa.

Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir Viðmiðum Heilsustefnunnar. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum, einnig er hægt að sækja um með rafrænum hætti á  http://www.leikskolinn.is/sudurvellir

Umsóknarfrestur er til 20. ágúst n.k. 

Nánari upplýsingar veita:
María Hermannsdóttir skólastjóri og Oddný Baldvinsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 440-6240. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á leikskóli@vogar.is