Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara/leiðbeinendur til starfa.
Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir Viðmiðum Heilsustefnunnar. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.
Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum, einnig er hægt að sækja um með rafrænum hætti á http://www.leikskolinn.is/sudurvellir
Umsóknarfrestur er til 13. janúar n.k.
Nánari upplýsingar veita:
María Hermannsdóttir, skólastjóri og Oddný Baldvinsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 440-6240. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á leikskóli@vogar.is
Vakin er athygli á því að starfið hentar jafnt konum sem körlum.