Leikskólakennarar óskast til starfa



Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa næsta haust.  Ef leikskólakennarar fást ekki til starfa þá koma aðrir umsækjendur til greina.

Suðurvellir er þriggja deilda leikskóli sem vinnur eftir Viðmiðum Heilsustefnunnar. Virðing og umhyggja eru leiðandi hugtök í leikskólanum og áhersla er lögð á gæði í samskiptum. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Umsóknum skal skila á netfangið leikskoli@vogar.is  eða sækja um á heimasíðu leikskólans  http://sudurvellir.leikskolinn.is/  fyrir 23. júní n.k.

Nánari upplýsingar um starfið veita: María Hermannsdóttir leikskólastjóri
og Oddný Baldvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 440-6240.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á leikskoli@vogar.is


Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið.